Minnst 93 eru látnir og 140 særðir eftir hryðjuverkaárás Ríkis íslams á Crocus City-tónleikahöllina í útjaðri Moskvu í Rússlandi í gærkvöldi.
Yfirvöld í Rússlandi segjast hafa handtekið 11 manns í tengslum við árásina. Árásarmennirnir eru sagðir hafa haft tengiliði í Úkraínu og ætlað sér að flýja yfir landamæri Rússlands til Úkraínu.
Rannsóknarnefnd á vegum rússneska ríkisins segir hryðjuverkamennina hafa nýtt sér einhvers konar brennanlegan vökva og kveikt í tónleikahöllinni.
Í kjölfarið hafi þeir hafið skothríð sem varð að minnsta kosti 93 manns að bana.
Yfirvöld í Rússlandi segja árásarmennina hafa haft tengiliði í Úkraínu og að í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar hafi þeir ætlað sér að flýja yfir landamærin til Úkraínu.
Þá sögðu yfirvöld að búið væri að handtaka ellefu manns í tengslum við árásina, þar á meðal fjóra hryðjuverkamenn sem eru sagðir hafa framkvæmt hana.
Í yfirlýsingunni segir að búið sé að handtaka „alla fjóra hryðjuverkamennina,“ sem komu með beinum hætti að árásinni.