Hafnaryfirvöld í Singapúr segja að flutningaskipið sem skall á brúna Francis Scott Key í bandarísku borginni Baltimore með þeim afleiðingum að brúin hrundi og lokaði þannig einni umsvifamestu höfn Bandaríkjanna, hafi staðist tvær skoðanir erlendis á síðasta ári.
Þannig hafi öll tilskilin leyfi og skírteini, sem ná yfir bæði burðarvirki skipsins og virkni búnaðarins, verið í gildi þegar slysið átti sér stað. Hafnaryfirvöld tóku jafnframt fram að í júní hafi eftirlitsmælir fyrir eldsneytisþrýsting verið lagaður.
Þá buðu hafnaryfirvöld í Singapúr bandarísku strandgæslunni aðstoð við rannsókn málsins og lögðu rannsakendur frá stofnun sem hefur eftirlit með öryggi í samgöngumálum í ríkinu leið sína til Baltimore seint í gær.
Í tilkynningu frá hafnarstjórn Baltimore segir að skipið hafi orðið aflvana skömmu áður en það skall á brúnni. Fyrir vikið gat áhöfnin ekki stýrt stefnu skipsins.
Enn fremur segir að áhöfnin hafi varpað akkerinu þegar mönnum varð ljóst að skipið myndi skella á brúnni. Engin úr áhöfninni slasaðist.
Talið er að átta verkamenn, sem störfuðu að næturlagi við holufyllingar í brúnni, hafi fallið í ána. Tveimur verkamönnum var bjargað þaðan, annar var ómeiddur en hinn alvarlega slasaður. Sex er enn saknað og eru þeir taldir af í ljósi þess hve langt er liðið frá því að brúin hrundi. Hefur nú hlé verið gert á leitinni að þeim.
Einhverjir sérfræðingar hafa bent á að burðarvirki brúarinnar geti ekki hafa verið rétt varið því þá hefði það átt að standast áreksturinn frá flutningaskipinu.
Toby Mottram, prófessor í byggingaverkfræði við háskólann í Warwick, segir höggið við slysið hafa verið töluvert, sérstaklega í ljósi þess að skipið var hlaðið miklum farmi auk þess sem skipið var á nokkurri ferð.
„Það er augljóst að brúin þoldi ekki höggið. [...] Umfang tjónsins á yfirbyggingu virðist í óhófi við orsökina,“ segir hann.
Hafnarstjórn Baltimore hefur þó tekið fram að hrun brúarinnar hafi ekkert haft með burðarvirki hennar að gera.
Yfirvöld hafa lokað brúnni þar til annað verður tilkynnt og umferð verður beint frá brúnni á meðan björgunarstarf heldur áfram. Embættismenn hafa þó sagt að leit og björgunaraðgerðum sé að linna og að nú sé lögð ríkari áhersla á uppbyggingu og endurheimt brúarinnar.
Þá er jafnframt fylgst grannt með eldsneytisleka frá flutningaskipinu.
Búist er við því að hrun brúarinnar muni hafa alvarlega áhrif á svæðið, meðal annars á umferð, auk þess sem tafir gætu orðið á skipaferðum vegna alls ruslsins sem flýtur um ána í kjölfar slyssins.
Höfnin í Baltimore er níunda mikilvægasta höfnin í Bandaríkjunum, bæði þegar metið er umfang innflutningsvara og verðmæti þeirra. 15 þúsund manns starfa við hafnartengd störf og eru afleidd störf talin um 140 þúsund.
Höfnin í Baltimore er ekki bara mikilvæg í vöruflutningum heldur einnig fyrir skemmtiferðaskip. Um 440 þúsund farþegar lögðu úr höfn frá Baltimore á síðasta ári.