Þrjú raforkuver í Úkraínu skemmdust í árásum Rússa í nótt. Notast var við flugskeyti og dróna.
Forsvarsmenn orkufyrirtækisins DTEK í Úkraínu segja að búnaður í orkuverunum hafi skemmst verulega í árásinni.
Þegar er hafin vinna við viðgerðir.