Þýskum fótboltaunnendum hefur verið bannað að kaupa treyjur þýska landsliðsins merktar með númerinu 44 eftir að vakin var athygli á líkindum tölunnar og merki SS-sveitanna, illræmdu úrvalsliði nasista, sem bar ábyrgð á mörgum helstu illvirkjum Þjóðverja á valdadögum Adolfs Hitler, fyrir og í seinni heimsstyrjöld.
Talsmaður Adidas sagði við fjölmiðla að fyrirtækið myndi hætta sölu á treyjum með númerinu 44. Þá hefur bleiki litur varabúningsins vakið athygli.
Sagnfræðingurinn Michael König vakti fyrst athygli á málinu og taldi hann hönnun treyjanna „mjög vafasama“.
Merki SS-sveitanna (Schutzstaffel) var hannað árið 1929 fyrir sérstakt varðlið Nasistaflokksins, sem síðar varð nánast ríki í ríkinu, ofstækisfullt og harðsvírað, jafnvel á mælikvarða Þriðja ríkisins.
Oliver Brüggen, talsmaður Adidas, hefur neitað því að fyrirtækið hafi viljandi látið númer treyjunnar minna á merki SS.
Þýska knattspyrnusambandið (DFB) tísti UEFA hefði skoðað hönnun búninganna og ekki gert neina athugasemd.
Þá sagði í tístinu að ný hönnun fyrir töluna 4 yrði þróuð.