Xi Jinping, forseti Kína, og Joe Biden Bandaríkjaforseti ræddu saman símleiðis í dag, að sögn kínverska ríkissjónvarpsins.
Samskipti Bandaríkjanna og Kína hafa verið spennuþrungin síðustu ár, einkum í tengslum við sjálfstæði Taívan.
Aftur á móti hafa stjórnvöld hvor sínu megin við Kyrrahaf reynt upp á síðkastið að lægja öldurnar í stormasömu sambandi stórveldanna tveggja.
„Þjóðarleiðtogarnir tveir áttu í opinskáum og ítarlegum skoðanaskiptum um samband Kína og Bandaríkjanna og mál sem varða báðar hliðar,“ segir í frétt CCTV.
Er þetta í fyrsta sinn frá því í nóvember sem Xi og Biden ræða saman en þá funduðu þeir í persónu í San Francisco.
Bandarískur ráðamaður sagði einnig fjölmiðlum í dag að Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, myndu heimsækja Kína á komandi vikum.