Fjórir eru látnir og fimm særðir eftir flugskeytaárás Rússa á borgina Míkolaív í suðurhluta Úkraínu í morgun.
Íbúðarhúsnæði, bílar og iðnaðarhúsnæði urðu m.a. fyrir tjóni í árásinni.
Reuters greinir frá.
„Óvinurinn heldur áfram árásum á suðurhluta Úkraínu. Ósvífin árás á Míkolaív um hábjartan dag,“ greindi herstjórn suðurhluta Úkraínu frá á Telegram.