Vísindamenn á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem lauk í Barcelona á Spáni í dag, hvöttu til frekari rannsókna á mikilli hækkun sjávarhita sem þeir vara við að gæti haft hrikalegar afleiðingar.
„Breytingarnar gerast svo hratt að við náum ekki að halda í við áhrifin,“ segir Vidar Helgesen, framkvæmdastjóri haffræðinefndar UNESCO, við AFP-fréttaveituna.
Á fundinum komu saman um 1.500 vísindamenn og fulltrúar ríkisstjórna og umhverfissamtaka til að ræða verndun hafsins.
Loftslagseftirlit Evrópusambandsins, sem kennt er við Kópernikus, segir að meðalhiti yfirborðs sjávar í mars hafi verið 21 gráða sem er nýtt met.
„Hafið hefur miklu meiri varmagetu en andrúmsloftið. Það gleypir miklu meiri hita en það getur ekki tekið hann í sig að óendanlega,“ segir Cristina Gonzalez Haro, vísindamaður við Hafvísindastofnun Barcelona.
Yfir 90 prósent af heimshöfunum upplifðu hitabylgjur árið 2023, sem höfðu bein áhrif á loftslag og vistkerfi um allan heim, jafnvel þau sem eru staðsett langt frá höfum, samkvæmt Alþjóðaveðurfræðistofnun Sameinuðu þjóðanna (WMO).