Tilfellum kíghósta hefur fjölgað snarlega í Tékklandi á þessu ári og hafa þrír þegar látist af völdum sjúkdómsins. Frá þessu greina heilbrigðisyfirvöld þar í landi í dag.
Í ríkinu búa um 10,9 milljónir manna og hafa 7.888 tilfelli sjúkdómsins verið færð til bókar á þessu ári. Þar af greindust í síðustu viku 1.494 tilfelli.
Inni á sjúkrahúsum liggja 183 manns með kíghósta.
Útbreiðslan er sú mesta frá því árið 1959, þegar bólusetningar hófust við bakteríusýkingunni sem veldur sjúkdómnum.
Bólusetningarskylda er í landinu, en bólusetningin varir ekki út ævina auk þess sem sumir hafna bólusetningu.
Táningar hafa orðið verst úti, þar sem foreldrar þeirra hundsa oft þá endurbólusetningu sem mælt er með fyrir börn á aldrinum 10-11 ára.
Þrír hafa látist af völdum sjúkdómsins á árinu eins og áður sagði: 62 ára karlmaður, 84 ára kona og nýburi. Öll voru þau veik fyrir sökum annarra heilsukvilla.
Greint var frá því á fimmtudag að tveir hefðu greinst með kíghósta hér á landi í mánuðinum.
Útbreiðsla sjúkdómsins í heiminum hefur farið vaxandi síðustu 20 ár og er sjúkdómurinn landlægur í sumum löndum.
„Kíghósti er alvarleg öndunarfærasýking hjá börnum, einkum á fyrstu mánuðum ævinnar. Hjá unglingum og fullorðnum einkennist sjúkdómurinn af langvarandi og þrálátum hósta og kvefeinkennum,“ segir á vef landlæknis.
„Ungum börnum á fyrstu 6 mánuðum ævinnar er sérlega hætt við alvarlegum afleiðingum kíghósta, meðal annars slæmum hóstaköstum og öndunarstoppi og getur sjúkdómurinn verið þeim lífshættulegur. Smit berst á milli manna með úða frá öndunarfærum.”