Útlit er fyrir að yfirvöldum hafi loks tekist að upplýsa þjófnað á gámi fullum af gullstöngum og peningum á Pearson-alþjóðaflugvellinum í Toronto í Kanada fyrir ári síðan.
Yfirvöld í Kanada greindu frá þessu í dag en á morgun verður upplýst frekar um handtökurnar í málinu.
Gullstangirnar og peningarnir eru taldir vera að verðmæti 15 milljónir dollara, sem jafngildir um tveimur milljörðum íslenskra króna. Gullstangirnar vógu rúmlega 400 kíló og þá voru tvær milljónir króna í reiðufé. Varningurinn hafði nýlega verið kominn til Toronto í flugi frá Zürich í Sviss áður en honum var stolið. Þjófnaðurinn er talinn vera einn sá stærsti í sögu Kanada.
Bandaríska öryggisfyrirtækið, Brink' International kærði síðar Air Canada vegna þjófnaðarins en samkvæmt skráningu fyrirtækisins á síðasta ári gekk þjófur burt með dýra farminn eftir að hafa framvísað fölsuðu skjali í vöruhúsi Air Canada þann 17. apríl í fyrra. Brink' International hélt því fram að flugfélagið hafi sýnt mikið kæruleysi með því að koma ekki í veg fyrir þjófnaðinn.
Í varnaryfirlýsingu 8. nóvember hafnaði Air Canada ásökunum í málsókn öryggisfyrirtækisins. Það sagðist uppfylla flutningasamninga sína og neitaði að hafa ekki sinnt skyldum sínum.