Minnst níu eru látnir og tuttugu særðir eftir árás á úkraínsku borgina Tsjernihív í morgun. Að sögn yfirvalda hæfðu þrjú flugskeyti nokkrar byggingar.
Borgin, sem er í Tsjernihív-héraði, er skammt frá landamærum Úkraínu og Hvíta-Rússlands.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínu skorta viðunandi loftvarnarkerfi til að stöðva árásir Rússa.
„Þetta hefði ekki gerst hefði Úkraína verið með viðunandi loftvarnarkerfi og ef heimurinn væri nógu staðráðinn í að verjast hryðjuverkum Rússa,“ segir forsetinn.