Íranskir miðlar þvertaka fyrir árás á landið

Íranskir miðlar þvertaka fyrir árás. Mynd úr safni.
Íranskir miðlar þvertaka fyrir árás. Mynd úr safni. AFP/Louai Beshara

Íransk­ir fjöl­miðlar þver­taka nú fyr­ir að Íran hafi orðið fyr­ir ut­anaðkom­andi árás í kjöl­far þess að nokkr­ir drón­ar voru skotn­ir niður og spreng­ing­ar heyrðust í grennd við Is­fa­h­an, borg um miðbik Írans.

„Það hafa ekki borist nein­ar upp­lýs­ing­ar um ut­anaðkom­andi árás á Is­fa­h­an eða á önn­ur landsvæði í Íran,“ sagði fréttamiðill­inn Tasnim og vísaði í heim­ild­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert