Forseti Kólumbíu, Gustave Petro, sagði fyrr í dag að Kólumbía myndi slíta stjórnmálasamstarfi við Ísrael og sagði leiðtoga Ísraels þjóðarmorðingja sökum framferði Ísraels á Gasasvæðinu.
„Á morgun (fimmtudaginn) verður stjórnmálasamstarfi við Ísrael slitið... sökum þess að forseti landsins er þjóðarmorðingi.“
Petro sagði einnig að lýðræðissinnað fólk þyrfti að koma í veg fyrir endurreisn nasismans á alþjóðavettvangi stjórnmála.
Petro hefur verið gagnrýninn á sókn Ísraelshers á Gasa og sakaði meðal annars varnarmálaráðherra Ísraels, Yoav Gallant, um að notast við orðalag sem hann sagði nasista hafa notað til að lýsa gyðingum forðum.