Óljóst er hvort slóvakíski forsætisráðherrann Robert Fico lifi af banatilræðið sem gert var að honum fyrr í dag, þegar hann var skotinn fimm sinnum á leið sinni af ríkisstjórnarfundi.
Fico er að „berjast fyrir lífi sínu“, að sögn Roberts Kalinaks, varnarmálaráðherra Slóvakíu. Ráðherrar ávörpuðu fjölmiðla fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.
Kalinak bendir á að Fico hafi legið undir hníf skurðlæknis í rúmlega þrjá tíma og er í lífshættu. Heilsa forsætisráðherrans sé „afar alvarleg“.
Einn hefur verið handtekinn grunaður um verknaðinn.
Matus Sutaj Estok innviðaráðherra sagði banatilræðið við Fico vera árás á lýðræðið. Hann sagði að ráðherrann hefði verið skotinn fimm sinnum og margt benti til þess að árásin hafi við „pólitísk“.
Estok kenndi hatursorðræðu á samfélagsmiðlum um skotárásina og hvatti landa sína til að svara ekki hatri með meira hatri.
Forsætisráðherrann er afar umdeildur en hann tók aftur við embætti í október. Hann hefur stöðvað vopnasendingar til Úkraínu og er sagður hliðhollur Rússsum.
Þá hafa hafa þúsundir Slóvaka mótmælt áformum hans um að breytingar á ríkisútvarpi Slóvakíu. Mótmæli áttu að fara fram í dag, undir forystu stjórnarandstöðunnar í landinu, en þau voru blásin af vegna banatilræðisins.
Estok innviðaráðherra ávarpaði síðan fjölmiðla beint og sagði þá samseka í að kynda undir þunga samfélagsumræðu.
„Mörg ykkar voru meðal þeirra sem ræktuðu þetta hatur,“ sagði Estok og benti á að fjölmiðlar bæru „samfélagslega ábyrgð“ um að berjast gegn hatursorðræðu.