Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, kveðst hryggur að heyra fregnir af þyrluslysi forseta Íran, Ebrahim Raisi, og segir Tyrki reiðbúna til að styðja við Íran.
„Við fylgjumst náið með þróun mála og erum í nánum samskiptum við írönsk stjórnvöld og erum reiðubúin að veita alla þá aðstoð sem þörf er á,“ sagði Tyrklandsforsetinn í tísti á samfélagsmiðlinum X.
Leit stendur enn yfir að þyrlunni sem nauðlenti harkalega í norðvesturhluta landsins en þyrlan var ein af þremur þyrlum forsetans sem voru á leið frá Aserbaísjan til borgarinnar Tabriz í Íran.
Tvennar sögur fara af því hvort þyrlan sé fundin. Ríkismiðill Íran greindi frá því í beinni útsendingu að svo væri en Rauði hálfmáninn hefur sagt þær upplýsingar rangar.
IRNA greindi frá því að samgönguráðuneyti landsins hefði tekist að að rekja nauðlendingu þyrlunnar til svæðis með tæplega tveggja kílómetra radíus, en að leitin að loftfarinu gangi erfiðlega vegna veðurskilyrða.