Óljóst er hvort björgunarteymi í Íran hafi fundið þyrlu forseta landsins, Ebrahim Raisi.
Í umfjöllun Reuters, þar sem vísað er í beina útsendingu ríkissjónvarps Írans, segir að þyrla forsetans sé fundin. Rauði hálfmáninn í Íran segir aftur á móti þær upplýsingar ekki vera réttar.
Fregnir af leit þyrlunnar hafa verið óljósar fram til þessa en hún er sögð hafa nauðlent harkalega vegna veðurskilyrða í norðvesturhluta landsins. Var þyrlan á leið frá Aserbaísjan til írönsku borgarinnar Tabriz í fylgd tveggja annarra þyrla.
Ríkismiðillinn IRNA hefur eftir varaforseta framkvæmdasviðs landsins, Mohsen Mansouri, að tveir úr fylgdarliðið forsetans hafi verið í sambandi við björgunarteymi, sem gefi til kynna að flugslysið hafi ekki verið mjög alvarlegt.
Segir Mansouri það einnig lofa góðu að samgönguráðuneyti Íran hafi tekist að rekja nauðlendingu þyrlunnar til svæðis með tæplega tveggja kílómetra radíus
Ayatollah Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, hefur biðlað til þjóðarinnar að biðja fyrir forsetanum og sömuleiðis hvatt til þess að fólk haldi ró sinni. Sagði hann hvarf forsetans ekki hafa áhrif á stjórn landsins.
Finnist forsetinn ekki á lífi tekur Mohammad Mokhber, varaforseti landsins, við embættinu en samkvæmt stjórnarskrá ættu forsetakosningar að fara fram innan 50 daga.
Í för með Raisi í þyrlunni var utanríkisráðherra landsins, Hossein Amir-Abdollahian, en um 40 björgunarteymi leita nú þyrlunnar á svæðinu en leitin hefur reynst erfið vegna þoku.