Þyrla íranska forsetans lenti í „slysi“ í dag að sögn íranskra fjölmiðla. Óvíst er hvort Ebrahim Raisi forseti hafi verið í þyrlunni.
Atvikið átti sér stað norðausturhluta landsins og eru björgunaraðgerðir í gangi.
CNN greinir frá því að þyrlan hafi verið ein af þremur þyrlum forsetans sem voru á leið frá Aserbaídsjan.
Slæm veðurskilyrði eru á svæðinu og mikil þoka sem gera viðbragðsaðilum erfitt fyrir.
Hinar tvær þyrlurnar komust þá á áfangastað.
Íranskir miðlar greina frá því að Hossein Amir-Abdollahian utanríkisráðherra, auk annarra embættismanna, hafi verið í sömu þyrlu og Raisi.
Raisi er 63 ára gamall og hefur verið forseti Íran frá árinu 2021.