Æðsti klerkur Írans, Ali Khameini, hefur lýst yfir fimm daga þjóðarsorg vegna dauða Ebrahim Raisi, forseta Írans, sem fórst í þyrluslysi í gær, ásamt utanríkisráðherranum Hossein Amirabdollahian og sjö öðrum.
Ayatollah hefur skipað varaforseta landsins, Mohammad Mokhber, forseta landsins.
Ali Bagheri, sem hefur starfað sem sendiherra og ráðgjafi í þjóðaröryggismálum Írans, hefur verið skipaður utanríkisráðherra.