Lögmenn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, luku málflutningi sínum í dag án þess að Trump bæri vitni í málinu. Trump hefur hins vegar ítrekað gefið í skyn að hann muni bera vitni.
Sonur Trump, Donald Trump yngri, varði ákvörðun föðurs síns um að bera ekki vitni í málinu.
„Það er engin ástæða, ekkert sem réttlætti það að gera það. Allir sjá hvað þetta er,“ sagði sonur Trump fyrir utan dómshúsið, í New York í dag.
Trump er sakaður um að hafa falsað reikninga og önnur gögn í tengslum við greiðslur til klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels. Trump og Daniels eiga að hafa átt samneyti árið 2006. Fyrsta greiðsla Trump til að þagga niður í Daniels um samneyti þeirra barst árið 2016, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.