Ekki er búið að bera kennsl á konuna sem nakinn maður er talinn hafa myrt þegar hún var úti að hlaupa í Sviss í gærkvöldi.
Nakti maðurinn er einnig talinn hafa slasað annan mann lítillega.
Enn er óljóst hvort að maðurinn hafi beitt vopni við þegar hann hljóp nakinn um garð við Zürich-vatnið í Männedorf í Sviss, öskrandi og réðst á fólk.
Borgarstjórinn í Mannedorf, Wolfgang Annighofer, sagði í samtali við AFP að glæpatíðni í Mannedorf væri mjög lág. Hann sagði að öryggi yrði aukið í kringum garðinn, sem er vinsæll lautarferðarstaður, þar sem árásirnar áttu sér stað.