Myndband sem birt var á samfélagsmiðlum Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðenda, með yfirlýsingum um „sameinað ríki,“ kæmi til þess að hann myndi vinna kosningarnar, hefur verið fjarlægt af samfélagsmiðlum hans.
Var það gert í kjölfar þess að Hvíta húsið fordæmdi myndbandið harðlega.
Kosningateymi Trumps kennir kærulausum starfsmanni um að hafa deilt myndbandinu, sem var 30 sekúndna langt og varpaði ljósi á fréttir sem draga fram mynd af bandarískri velmegun. Þar á meðal var hugtak sem venjulega er tengt við þýskan nasisma, „reich“.
Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, gagnrýnir myndbandið og segir það skelfilegt.
„Svona orðræða frá fyrrverandi forseta kemur ekki á óvart og hún er skelfileg. Við verðum að segja honum hver við erum,“ sagði Harris í ræðu til félagsmanna í Fíladelfíu.
„Enn og aftur sýnir það að frelsi okkar og sjálft lýðræðið er í húfi,“ sagði hún enn fremur.
Hvíta húsið segir myndskeiðið „viðbjóðslegt, sjúklegt og skammarlegt fyrir hvern sem er að ýta undir efni sem tengist þýsku nasistastjórninni undir stjórn Adolfs Hitlers“.
„Karine Jean-Pierre, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, segir viðbúið að Joe Biden Bandaríkjaforseti muni tjá sig um myndbandið síðar í dag, en hann er á kosningaferðalagi í Boston.
Myndbandið var birt síðdegis á mánudag og var fjarlægt um 19 klukkustundum síðar.
„Hvað gerist eftir að Donald Trump vinnur? Hvað kemur fyrir Ameríku?“ heyrðist í umræddu myndbandi á meðan fyrirsagnir á borð við „Landamærin eru lokuð,“ „Efnahagsuppsveiflur!“ og „Stofnun sameinaðs auðvalds“ birtust á skjánum.
Engin bein vísun er til nasista í myndbandinu en orðið „reich“ er almennt notað sem tilvísun til þriðja ríkisins Þýskalands undir flokksræði nasista og Hitlers.
Þá mátti sjá aðrar fyrirsagnir í bakgrunni myndbandsins þar sem fyrri heimsstyrjöldin var nefnd auk fyrirsagnarinnar „sameinað ríki“ sem virðist vísa til sameiningar Þýskalands árið 1871.