Hvíta Húsið varar Ísrael við því að halda eftir fjármagni, sem ætlað er palestínskum yfirvöldum, til að hefna fyrir ákvörðun Írlands, Noregs og Spánar um að viðurkenna sjálfstæði Palestínu.
Segir Jake Sullivan, þjóðaröryggisráðgjafi Joe Biden Bandaríkjaforseta, rangt að halda eftir fjármagninu þar sem það yrði til þess fallið að valda óstöðugleika á Vesturbakkanum.
„Það grefur undan leitinni að öryggi og velmegun fyrir palestínsku þjóðina sem er í þágu Ísraels. Auk þess sem ég held að það sé rangt að halda eftir fjármagni sem ætlað til kaupa á grunnvörum og þjónustu fyrir saklaust fólk.“
Ísraelar eru ævareiðir yfir ákvörðun Írlands, Noregs og Spánar um að viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Löndin tilkynntu um ákvörðun sína í dag og hyggjast þau öll viðurkenna ríki Palestínu formlega þann 28. maí. Ákvörðunin hefur vakið lof margra landa í araba- og múslimaheiminum.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ákvörðun ríkjanna á hinn bóginn jafngilda „verðlaunum fyrir hryðjuverk.“