Slökkviliðsmaður var handtekinn í dag í Síle, grunaður um að hafa kveikt eld sem varð 137 manns að bana í borginni Viña del Mar.
„Handtökuskipun var gefin út í dag fyrir einstaklinginn sem kveikti eldinn í febrúar í Valparaiso-landsvæðinu," sagði lögreglustjórinn Eduardo Cerna á blaðamannafundi.
Slökkviliðsmaðurinn er 22 ára gamall og hóf störf við 13. sveit slökkviliðsins í Valparaiso fyrir einu og hálfu ári síðan.
Eldur braust út á mörgum stöðum á sama tíma 2. febrúar í nágrenni hafnarborgarinnar Viña del Mar, um 110 kílómetrum frá höfuðborginni Santiago.
Eldurinn breiddist hratt úr vegna vinda og lofthita, en um það bil 40 stiga hiti var víða á svæðinu vegna hitabylgju.