Íslendingurinn, sem slasaðist um borð í flugi Singapore Airlines fyrir fimm dögum þegar flugvélin lenti í mikilli ókyrrð, er enn á sjúkrahúsi í Bangkok í Taílandi.
Þetta kemur fram í færslu Samitivej Srinakarin sjúkrahússins í Bangkok á samfélagsmiðlinum Facebook í dag.
Einn lést og 104 slösuðust þegar vélin hrapaði nærri tvo kílómetra á fáeinum mínútum á þriðjudaginn, 21. maí. 211 farþegar voru um borð í vélinni og 18 manna áhöfn. Flugvélin var á leið frá London til Singapúr en þurfti að nauðlenda í Bangkok.
Í færslunni kemur fram að 41 séu enn á sjúkrahúsi, þar af 33 á Samitivej Srinakarin sjúkrahúsinu.
Fimm einstaklingar eru á gjörgæslu, þrír frá Ástralíu, einn Breti og einn Nýsjálendingur.
28 eru á almennri deild, þar á meðal Íslendingurinn.