Tólf manns slösuðust í flugvél Qatar Airways eftir mikla ókyrrð í lofti. Flugvélin lenti örugglega á flugvelli í Dyflinn í Írlandi klukkan 12 að íslenskum tíma í dag.
Flugið var á leið frá Doha í Katar og þegar vélin flaug yfir Tyrkland þá myndaðist mikil ókyrrð.
Sex farþegar slösuðust vegna ókyrrðarinnar, auk sex áhafnarmanna.
Á flugvellinum í Dyflinn voru viðbragðsaðilar klárir þegar vélin lenti í hádeginu til þess að hlúa að þeim slösuðu.
Aðeins vika er liðin síðan að einn farþegi lést og meira en 100 manns slösuðust þegar flugvél Singapore Airlines af gerðinni Boeing 777 féll 1.800 metra á nokkrum mínútum í flugi frá Lundúnum til Singapúr.