Í það minnsta 21 hafa látið lífið eftir að hvirfilbyljar og miklir stormar geisuðu um Bandaríkin síðastliðna helgi.
Stormurinn hafði mest áhrif í Arkansas, Texas, Kentucky og Oklahoma. Enn er búist við slæmu veðri í Georgíu-ríki ásamt Suður-Karólínu og hafa veðurviðvaranir verið gefnar út á svæðinu.
Stormurinn hefur jafnað hundruð bygginga við jörðu og voru hundruð þúsunda enn án rafmagns nú á mánudag.