Nítján ára drengur í Washington-ríki í Bandaríkjunum er sagður heppinn að vera á lífi eftir að hann féll niður 120 metra með fram brún gljúfurs nú á dögunum.
BBC greinir frá því að drengurinn hafi verið við göngu á svæði, nærri Skokomish á, sem sé talið of bratt til þess að ganga á örugglega, en margir noti slóð sem hafi myndast á svæðinu, sem göngustíg.
Yfirvöld á svæðinu eru sögð hafa varað fólk oft við því að vera á svæðinu en þau fyrirmæli séu ítrekað hundsuð.