Krókódíll með lík í kjaftinum

Krókódíll á sveimi í bænum Ingham í Queensland.
Krókódíll á sveimi í bænum Ingham í Queensland. AFP

Lögreglan í Houston var að leita að týndri konu þegar hún kom að krókódíl með líkamsleifar í kjaftinum. 

Krókódíllinn var skotinn til bana og kafari fenginn til að fara ofan í vatnið og sækja lífamsleifarnar. 

Ekki er búið að bera kennsl á líkið en lögreglan telur að um konu á sextugsaldri sé að ræða. 

Óvíst er hvort að krókódíllinn hafi drepið konuna eða ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert