35 handteknir á samkomu satanista

Stjörnvöld í Íran hafa iðulega flokkað rokktónleika sem satanískar samkomur
Stjörnvöld í Íran hafa iðulega flokkað rokktónleika sem satanískar samkomur AFP

Yfirvöld í Íran handtóku 35 manns á samkomu satanista í héraðinu Khuzestan í suðvesturhluta landsins í gær. 

Árásin átti sér stað eftir að lögregla náði að staðsetja samkomuna. Að sögn fréttaveitu íranska ríkisins, ISNA, innihélt samkoman tákn um satanisma, áfengi og fíkniefni. 

Rokk og áfengi illa séð

Árásir á satanískar samkomur eru ekki óalgengar í Íran og beinast að mestu að viðburðum sem innihalda áfengisneyslu, en hún er að mestu bönnuð í Íran. 

Árið 2007 voru 230 manns handteknir á rokktónleikum nálægt höfuðborginni Teheran. Yfirvöld í landinu hafa iðulega flokkað rokktónleika sem satanískar samkomur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert