Myndir: Skvetti mjólkurhristingi framan í Farage

Ljósmyndari AFP náði augnablikinu vel á myndavél sína.
Ljósmyndari AFP náði augnablikinu vel á myndavél sína. AFP

Ung kona skvetti mjólkurhristingi yfir Nigel Farage nú síðdegis í bænum Clacton-on-Sea á Englandi er hann yfirgaf veitingastað Wetherspoons-keðjunnar.

Breska dagblaðið Telegraph greinir frá.

Farage bregst við skvettunni.
Farage bregst við skvettunni. AFP

Farage tilkynnti endurkomu sína í bresk stjórnmál í byrjun þessarar viku þar sem hann tekur við af Richard Tice sem formaður hægri flokksins Reform UK.

Flokkurinn var stofnaður árið 2018 og beitti sér fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

Farage var leiddur í burtu eftir að hann fékk hristinginn …
Farage var leiddur í burtu eftir að hann fékk hristinginn framan í sig. AFP

Leið þannig í augnablikinu

Hann er nú staddur í bænum að hefja kosningabaráttuna en hann gefur kost á sér í þingsæti Clacton.

„Hann er ekki fulltrúi minn, hann stendur ekki fyrir neitt sem ég eða fólkið hér trúir á,“ segir konan með mjólkurhristinginn í samtali við BBC en hún gaf einungis upp nafnið Victoria.

Fleiri þurftu að þola að fá innihaldið framan í sig.
Fleiri þurftu að þola að fá innihaldið framan í sig. AFP/Ben Stansall

Hún segist ekki hafa ákveðið fyrir fram að skvetta yfir Farage, henni hafa bara liðið þannig í augnablikinu.

Frambjóðandinn brá á leik eftir atvikið og sat fyrir með …
Frambjóðandinn brá á leik eftir atvikið og sat fyrir með álíka drykk og hann hafði fyrr fengið framan í sig. AFP

Ekki fyrsti hristingurinn sem Farage fær yfir sig

Þetta er ekki fyrsti mjólkurhristingurinn sem Farage fær yfir sig í kosningabaráttu.

Árið 2019 fékk hann einn slíkan yfir sig í Newcastle þegar kosningabarátta fyrir Evrópuþingskosningarnar stóð yfir. 

Paul Crowther var þar að verki og var seinna meir ákærður fyrir líkamsárás og skemmdarverk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert