Hunter Biden, sonur Joe Biden Bandaríkjaforseta, segist þakklátari fyrir stuðninginn og ástina frá fjölskyldunni heldur en hann sé vonsvikinn með niðurstöðu kviðdómsins.
Biden yngri var fyrr í dag sakfelldur í máli sem varðar kaup á skotvopni árið 2018.
Hann var sakaður um að hafa keypt sér skotvopn undir áhrifum fíkniefna árið 2018 og ólöglega haft byssuna undir höndum í 11 daga. Honum var einnig gefið að sök að hafa fært inn rangar upplýsingar á eyðublöðum sem fylgdu byssukaupunum þar sem krafist var að viðkomandi noti ekki ólögleg fíkniefni.
Eftir að niðurstaða kviðdómsins varð ljós sagði Biden yngri í tilkynningu bata vera mögulegan og að hann væri þeirrar blessunar aðnjótandi að fá að upplifa það.
Fram kom einnig að lögmannateymi hans myndi nýta alla þá kosti sem stæðu honum til boða í kjölfar sakfellingarinnar.
Í umfjöllun CNN kom fram að líklega færi dómsuppkvaðning fram í október. Gæti Biden yngri átt yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisdóm og 750 þúsund dollara, eða um 105,1 milljóna króna, sekt. Þykir þó ólíklegt að hann muni hljóta svo þungan dóm.