Háttsettur embættismaður innan Hisbollah hét því að herða árásir samtakanna í Ísrael, í jarðarför ofurstans Taleb Sami Abdallah, í dag.
Abdallah féll í loftárásum Ísraela í Suður-Líbanon í gær.
„Við munum efla styrk, kraft, magn og gæði árása okkar,“ sagði Hashem Safieddine, embættismaður Hisbollah, í jarðarför Abdallah.