Þrjár bragðtegundir af kóresku Samyang-skyndinúðlunum vinsælu hafa verið innkallaðar í Danmörku fyrir að vera of sterkar og er nú óheimilt að selja þær í verslunum.
Bragðtegundirnar sem um ræðir eru Buldak 3x Spicy & Hot Chicken, 2x Spicy & Hot Chicken og Hot Chicken Stew.
Hefur danska matvælaeftirlitið hvatt neytendur til að skila inn vörunni sem þeir segja innihalda hættulega mikið af efninu kapsaísín, sem má finna í eldpipar.
Núðlurnar eru fáanlegar á Íslandi.
Segir að neytendur, einkum börn og viðkvæmir fullorðnir einstaklingar, eigi á hættu að hljóta bráðaeitrun við að neyta matvörunar.
Bendir matvælaeftirlitið á að varan sé markaðssett til að höfða til barna á samfélagsmiðlum með ýmsum áskorunum þar sem börn og ungmenni borða mjög sterkar núðlur til að sýna þol.
Bendir matvælaeftirlitið á að fjöldi barna í Þýskalandi hafi þurft að leita á sjúkrahús vegna kapsaísín-eitrunar eftir að hafa tekið þátt í svipaðri samfélagsmiðla-áskorun þar sem þau neyttu kartöfluflaga með sterku eldpiparsbragði.
„Magnið af eldpipar er enn meira í núðlunum sem eftirlitið rannsakaði, en í eldpipars-snakkinu sem leiddi til eitrunar hjá börnunum í Þýskalandi. Það er því mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um þessar sterku núðlutegundir og forðist þær,“ segir Henrik Dammand Nielsen, deildarstjóri matvælaeftirlitsins.