Átta ísraelskir hermenn drepnir í árás á Gasa

Mynd úr safni af ísraelskum hermönnum.
Mynd úr safni af ísraelskum hermönnum. AFP

Ísraelsher greinir frá því að átta hermenn hafi látið lífið í suðurhluta Gasa í dag. 

Hermennirnir eru sagðir hafa látið lífið í „sérstökum aðgerðum“. 

Ísraelskir fjölmiðlar greina frá því að hermennirnir hafi látið lífið í Rafah–borg eftir að bifreið þeirra hafi verið sprengd í loft upp. 

Í yfirlýsingu hersins sagði að hinn 23 ára gamli Wassem Mahmud og sjö aðrir undirmenn hans hefðu látið lífið.

Árásin er ein af þeim mannskæðustu fyrir Ísraelsher frá því að stríðið á Gasa hófst fyrir átta mánuðum síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert