Héraðsdómur Kaupmannahafnar hefur ákveðið að framlengja gæsluvarðhald yfir manninum sem ákærður er fyrir árás á Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, vegna þess að líklegt sé að hinn ákærði leggi á flótta verði hann látinn laus.
Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Gæsluvarðhaldið yfir hinum ákærða var í dag framlengt til 4. júlí næstkomandi.
Hinn ákærði er 39 ára gamall pólskur maður sem er ákærður fyrir ofbeldi gegn einstaklingi í opinberri þjónustu. Maðurinn er sagður hafa slegið forsætisráðherra harkalega á hægri upphandlegg hennar sem hafi orðið til þess að hún missti jafnvægið.
Í yfirheyrslu sagði sá ákærði að hann muni ekki vel eftir atvikinu sökum mikillar ölvunar. Þó muni hann eftir því að hafa hitt forsætisráðherrann.
Við rannsókn málsins kom í ljós að þetta er ekki í fyrsta skipti sem hinn ákærði kemst í kast við lögin. Áður hafi hann verið tekinn fyrir kynferðisbrot og búðarþjófnað.
Saksóknari segir að rannsókn á málinu standi enn yfir.