Æfingu fyrir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í París hefur verið frestað vegna þess hve mikið vatn er í ánni Signu sem rennur í gegnum borgina.
Frá þessu greina borgaryfirvöld í París en fyrirhugað var að æfingin yrði haldin á mánudag.
Eftir nokkurra vikna rigningartímabil er vatnsborðið í Signu nú fimm sinnum hærra en venjulega.
Að sögn borgaryfirvalda þýðir það að ekki verði hægt að „draga mikilvægan lærdóm“ af æfingunni og því hefur henni verið frestað.
Fyrr í dag greindi mbl.is frá því að borgaryfirvöld í París hefðu staðfest að ekki yrði óhætt að synda í ánni eins og staðan væri í dag. Ráðgert var að íþróttakappar myndu synda í ánni í þríþrautarkeppni Ólympíuleikanna.
Þá eru bakterírur á borð við e.coli að finna í ánni sem eru afar heilsuspillandi.
Forsvarsmenn keppninnar hyggjast fresta þríþrautarkeppninni ef áin verður ekki nægilega hrein. Ísland á einn fulltrúa í þríþrautarkeppninni en það er hún Guðlaug Edda Hannesdóttir.