Maður fannst í dag látinn eftir flóð í bænum Misox í suðausturhluta Sviss sem hófst á föstudaginn. Tveggja er enn saknað.
Hann fannst átta kílómetrum frá staðnum sem hann hvarf.
Kona sem var saknað fannst á lífi í gær en talsmaður lögreglunnar segir að líkurnar á að finna þau sem enn er saknað á lífi séu litlar.