Yfirvöld í Kanada hafa dregið til baka bann á þorskveiði við Nýfundnaland. Stofninn hrundi fyrir 32 árum og yfirvöld settu þá á bannið sem kostaði liðlega 20.000 sjómenn starfið.
Íbúafjöldi sjávarþorpa Nýfundnalands kolféll eftir að bannið var sett á árið 1992.
Mið Nýfundnalands hafa í sögulegu samhengi verið einstaklega gjöful. Sjómenn víða að úr Evrópu sóttu miðinn á árum áður og voru þau sögð erfið til róðurs sökum magns fisks sem flæktist fyrir árum ræðaranna.
Yfirvöld sögðu í október að stofninn hefði tekið við sér á síðustu árum.
Diane Lebouthillier, sjávarútvegsráðherra Kanada, segir að gengið verið varlega að endurreisn sjávarútvegs við Nýfundnaland, en með von í brjósti.
Til að byrja með verður leyfilegt að veiða 18 þúsund tonn af þorski sem er talsverð lækkun frá hámarki árlegra veiða á síðari hluta níunda áratugarins eða 250 þúsund tonn.