Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, hvetur Írana til að forðas stigmögnun átaka í Miðausturlöndum, en í dag fara fram forsetakosningar í landinu.
Baerbock sagði í símtali við Ali Bagheri, starfandi utanríkisráðherra Íran, að „koma verði í veg fyrir frekari stigmögnun hvað sem það kostar og að Íran verði líka að leggja sitt af mörkum til þess“. Frá þessu greindi ráðuneyti hennar á miðlinum X.