Þjóðfylkingarflokkur Marine Le Pen bar sigur úr býtum í fyrri umferð þingkosninga í Frakklandi. Flokkurinn hefur aldrei áður unnið fyrstu umferð þingkosninga.
BBC greinir frá.
Þjóðfylkingarflokkurinn hlaut 33,1% greiddra atkvæða. Bandalag vinstriflokka undir merkjum Nýju Alþýðufylkingarinnar hlaut 28% og miðjubandalag Emannuels Macrons Frakklandsforseta 20,76%.
„Ég stefni á að verða forsætisráðherra allrar frönsku þjóðarinnar, ef Frakkar veita okkur atkvæði sitt,“ sagði Jordan Bardella, leiðtogi Þjóðfylkingarflokksins, í gær.
Marine Le Pen og Jordan Bardella vilja hreinan meirihluta á þingi, en þá þurfa þau 289 þingsæti af 577 sætum.
Þingkosningarnar í Frakklandi fara fram með sérstöku sniði. Ef enginn einn frambjóðandi fær meirihluta í sínu kjördæmi fara þeir frambjóðendur sem hljóta nægt fylgi áfram í næstu lotu þar sem kosið er á nýjan leik. Næsta sunnudag verður seinni umferð kosninganna. Macron kallaði eftir breiðu lýðræðisbandalagi gegn Þjóðfylkingarflokkinum í gær.