Karlmaður var skotinn til bana í íbúð í sænsku borginni Södertälje, vestan við Stokkhólm, í nótt.
Aftonbladet greinir frá.
Samkvæmt heimildum Aftonbladet var einn annar maður í íbúðinni þegar árásin átti sér stað. Einnig er talið að hundur hafi verið skotinn til bana.
Lögreglu var tilkynnt um árásina klukkan 4 í nótt. Þegar sjúkralið kom á vettvang var reynt að bjarga manninum, en það tókst ekki. Samkvæmt heimildum Aftobladet var maðurinn skotinn nokkrum skotum.
Lögreglan leitar enn árásarmannsins. Ekki er vitað hvort fleiri en einn hafi staðið að árásinni.