Fulltrúadeildarþingmaðurinn Raúl Grijalva er nú annar þingmaður Demókrataflokksins til þess að skora á Joe Biden Bandaríkjaforseta að draga forsetaframboð sitt til baka.
„Ef hann er frambjóðandinn ætla ég að styðja hann, en ég held að þetta sé tækifæri til að leita annað,“ sagði Grijalva í samtali við dagblaðið New York Times.
„Það sem hann þarf að gera er að axla ábyrgðina á því að halda embættinu – og hluti af þeirri ábyrgð er að draga framboð sitt til baka,” sagði hann.
Lloyd Doggett, þingmaður Demókrata í fulltrúadeildinni, varð í gær fyrsti þingmaður flokksins til þess að kalla eftir því opinberlega að Biden mynda draga framboð sitt til baka.
Joe Biden þótti standa sig mjög illa í kappræðum á móti Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í síðustu viku.
Biden er þó „alls ekki“ að fara draga framboð sitt til baka, að sögn Karine Jean-Pierre, blaðamannafulltrúa Hvíta hússins.