Fann látna eiginkonu sína í kviði snáks

Snákar eru stórhættuleg kvikindi.
Snákar eru stórhættuleg kvikindi. AFP

Kona fannst látin inni í kviði snáks í þorpinu Siteba í Indónesíu að sögn lögreglunnar á svæðinu í morgun.

Sirati, sem var 36 ára gömul, yfirgaf hús sitt í gærmorgun til að kaupa lyf fyrir veikt barn sitt. En þegar hún skilaði sér ekki heim hófu ættingjar hennar leit að henni og fann eiginmaðurinn inniskó og buxur konu sinnar um 500 metra frá húsi þeirra.

Fékk þorpsbúa til að aðstoða sig

Eiginmaður Sirati kom síðan auga á snák skammt frá. Hann tók eftir því að kviður snáksins var útþaninn og fékk hann nokkra þorpsbúa til að aðstoða sig við að rista upp kvið snáksins. Þar fann hann lík eiginkonu sinnar.

Atvik af þessu tagi þykja sjaldgæf en nokkrir hafa þó verið gleyptir af snákum á undanförnum árum í Indónesíu. Kona fannst til að mynda látin inni í kviði snáks í Indónesíu í síðasta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert