Keir Starmer: „Þakkir til allra“

Samkvæmt útgönguspá þá er Verkamannaflokkurinn að vinna stórsigur.
Samkvæmt útgönguspá þá er Verkamannaflokkurinn að vinna stórsigur. AFP/Oli Scarff

Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur brugðist við spáðum stórsigri Verkamannaflokksins.

„Þakkir til allra sem hafa unnið fyrir Verkamannaflokkinn í þessum kosningum, til allra sem kusu okkur og settu traust sitt á okkar breytta Verkamannaflokki,“ sagði Keir Starmer á Twitter.

Sam­kvæmt út­göngu­spá þá er Verka­manna­flokkn­um spáð 410 sæt­um og bætir við sig 209 þing­sæt­um. Þetta myndi tryggja flokknum afgerandi meirihluta á þingi og allt stefnir í að Starmer taki við embætti forsætisráðherra.

Íhaldsflokkurinn geldur afhroð

Íhalds­flokkn­um er spáð 131 þingsæti og tapar því 241 þingsæti. Fyrir kosningarnar höfðu kannanir bent til þess að flokkurinn myndi aðeins fá um 100 þingsæti.

Ef útgönguspáin stenst þá verður þetta verri niðurstaða fyrir Íhaldsflokkinn heldur en árið 1997 þegar flokkurinn fékk sögulega fá þingsæti, eða 165.

Kjörstaðir lokuðu í Bretlandi klukk­an 21 að ís­lensk­um tíma og eins og hefð er fyr­ir þá birt­ist út­göngu­spá strax í kjöl­farið. Útgöngu­spá­in að sinni var unn­in af könn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Ip­sos, sem er í sam­vinnu við BBC, ITV News og Sky News

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert