Úgönguspá: Stórsigur Verkamannaflokksins

Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, verður næsti forsætisráðherra Bretlands ef útgönguspáin …
Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, verður næsti forsætisráðherra Bretlands ef útgönguspáin gengur eftir. AFP/Andy Buchanan

Samkvæmt útgönguspá þá er Verkamannaflokkurinn að vinna stórsigur í bresku þingkosningunum sem haldnar voru í dag. Íhaldsflokkurinn geldur algjört afhroð. 

Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá.

Verkamannaflokknum er spáð 410 sætum og bætir við sig 209 þingsætum. Þetta er þó ekki stærri sigur en árið 1997 þegar flokkurinn, undir forystu Tony Blair, vann sinn stærsta sigur.

Afhroð hjá Íhaldsflokknum

Íhalds­flokkn­um var spáð 131 þingsæti og tapar því 241 þingsæti. Fyrir kosningarnar höfðu kannanir bent til þess að flokkurinn myndi aðeins fá um 100 þingsæti og útgönguspáin bendir til þess að það standist.

Þetta yrði verri niðurstaða fyrir Íhaldsflokkinn heldur en árið 1997 þegar flokkurinn fékk sögulega fá þingsæti, eða 165.

Frjáls­lynd­ir demó­krat­ar fá sam­kvæmt út­göngu­spánni 61 þingsæti og bæta við sig 53 þingsætum. Þá fær Um­bóta­flokk­ur Nigel Farage 13 þingsæti.

Skoski þjóðarflokk­ur­inn fær aðeins 10 þing­sæti og tapar 38 þingsætum, miðað við útgönguspánna. Velski þjóðarflokk­ur­inn Plaid Cymru fengi 4 þingsæti og græningjar 2 þingsæti.

Kjörstaðir lokaðir

Kjörstaðir lokuðu í Bretlandi klukkan 21 að íslenskum tíma og eins og hefð er fyrir þá birtist útgönguspá strax í kjölfarið. Að þessu sinni var útgönguspáin unnin af könnunarfyrirtækinu Ipsos, sem er í samvinnu við BBC, ITV News og Sky News.

Útgönguspár eru nokkuð nákvæmar og eiga að gefa mjög góða mynd af því hver lokaniðurstaðan verður.

Kosið er 650 manns á þing í jafn mörgum kjördæmum. Flokkar þurfa því að minnsta kosti 326 þingsæti til að mynda meirihlutastjórn.

Rishi Sunak, leiðtogi Íhaldsflokksins, er að fara missa starf sitt …
Rishi Sunak, leiðtogi Íhaldsflokksins, er að fara missa starf sitt sem forsætisráðherra ef útgönguspáin gengur eftir. AFP/Justin Tallis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert