16 drepnir í árás á skóla

Skemmdir eftir árásina í Nuseirat í dag.
Skemmdir eftir árásina í Nuseirat í dag. AFP

Heilbrigðisráðuneyti Palestínu, undir stjórn Hamas-samtakanna, segir að Ísraelsher hafi drepið 16 manns í loftárásum á skóla í í Nuseirat, sem er miðsvæðis á Gasasvæðinu, í dag.

Í tilkynningu ráðuneytisins segir að þar að auki hafi 50 manns særst í áránum. Palestínumenn sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín hafi dvalið í skólanum. 

Ísraelsher sagði að verið sé að skoða málið, þegar BBC spurði um árásina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert