Blaðamannafundi Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta í kvöld hefur verið aflýst.
Selenskí hafði ætlað sér að halda blaðamannafund í kvöld á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Washington.
Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið. Fundi Joe Bidens Bandaríkjaforseta var frestað um nærri klukkustund, áður en hann hófst rétt fyrir kl. 23.30 að íslenskum tíma.
Gerist þetta í framhaldi af því að Biden kynnti Selenskí upp á svið fyrr í kvöld sem „Pútín forseta“.
Mismælin hafa strax vakið mikla athygli enda hafa áhyggjur farið vaxandi af heilsufari og aldri forsetans.