Myndskeið sýnir viðbrögð Bjarna við mistökunum

Joe Biden Bandaríkjaforseti og Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.
Joe Biden Bandaríkjaforseti og Volodimír Selenskí Úkraínuforseti. AFP

Þjóðarleiðtog­ar voru nokkuð stíf­ir er Joe Biden Banda­ríkja­for­seti kynnti Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seta sem „Pútín for­seta“ við at­höfn á leiðtoga­fundi Atlants­hafs­banda­lags­ins í gær.

Mynd­skeið af þjóðarleiðtog­un­um sýna viðbrögð þjóðarleiðtog­anna og Selenskís. Í einu mynd­skeiðinu má meðal ann­ars sjá Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráðherra, sem virðist bíða með að klappa eins og sum­ir aðrir þjóðarleiðtog­ar.

Selenskí ekki skemmt

Í seinna mynd­skeiðinu má sjá viðbrögð Selenskís sem virðist ekki vera skemmt í byrj­un. Hann sagði svo að hann væri miklu betri en Pútín. 

Biden leiðrétti sig skömmu eft­ir að hann lét orðin falla, en að sögn blaðamanna á staðnum var það eft­ir að viðstadd­ir höfðu kallað fram nafn Selenskís í kjöl­far mistaka Bidens.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert