Íslendingur dæmdur í fangelsi í Danmörku

Atvikið átti sér stað í Esjeberg á suðvestur Jótlandi í …
Atvikið átti sér stað í Esjeberg á suðvestur Jótlandi í gær. Ljósmynd/Wikipedia.org

33 ára íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Danmörku fyrir að slá kærustu sína ítrekað í andlitið. 

Danski miðilinn ONP greinir frá, en Vísir greindi frá fyrstur íslenskra miðla. 

Dómurinn var kveðinn upp í Esjeberg á suðvestur Jótlandi í gær. 

Maðurinn barði kærustu sína á bílastæði í bænum. Starfsmaður lögreglunnar, sem var þó ekki á vakt, varð vitni að árásinni og greip inn í. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert