Vill etja kappi við Biden

Donald Trump leiðir í flestum nýjum könnunum.
Donald Trump leiðir í flestum nýjum könnunum. AFP

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti og kosningateymi hans vilja að Joe Biden Bandaríkjaforseti haldi sér í forsetaframboði, samkvæmt heimildum breska dagblaðsins Guardian. Blaðið segir að fólk í kosningateymi Trumps vilji tryggja að forsetinn verði ekki hrakinn úr kosningabaráttunni.

Á meðan ríkir hálfgert neyðarástand í Demókrataflokknum þar sem a.m.k. 17 þingmenn demókrata hafa krafist þess að Biden víki og leyfi flokknum að útnefna annan frambjóðanda sem sé heppilegri til að takast á við Trump í forsetakosningunum í nóvember. 

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert