Guð kom í veg fyrir hið óhugsandi

Donald Trump sekúndum eftir árásina.
Donald Trump sekúndum eftir árásina. AFP

Donald Trump sagði Guð hafa komið í veg fyrir að hann léti lífið í skotárásinni á kosningafundi hans í Pennsylvaníuríki í gærkvöldi. Í nýrri færslu á miðli sínum Truth Social hvetur hann Bandaríkjamenn til þess að sameinast. 

„Það var Guð einn sem kom í veg fyrir að hið óhugsandi gerðist,“ sagði í færslu Trump sem særðist á hægra eyra. 

Hann hvatti Bandaríkjamenn til þess að sameinast til þess að koma í veg fyrir „sigur hins illa“.

Trump þegar hann lenti í Newark í New Jersey í …
Trump þegar hann lenti í Newark í New Jersey í gærkvöldi. AFP

Mætir á landsfundinn

Trump var tiltölulega ný stiginn á svið er hinn 20 ára gamli Thom­as Matt­hew Crooks hóf skothríð. 

Trump var um leið umkringdur fulltrúum bandarísku öryggisþjónustunnar sem kom honum í burtu.

Skyttur öryggisþjónustunnar skutu árásarmanninn til bana. Þá lést einn gestur kosningafundarins. Tveir særðust alvarlega. 

Trump staðfesti í nýjustu færslu sinni að hann muni mæta á landsfund Repúblikanaflokksins sem hefst á morgun í Milwaukee í Wisconsin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert